Jun 25, 2006
Sagan......

Beitir NK 123 kom til Reykjavíkur hafnar í Apríl árið 1958 frá Bremerhaven þar sem það var smíðað, undir nafninu Þormóður Goði RE 209 og þótti fremur nývæddur á þeim tíma. Árið 1979 var skipið keypt af útgerðinni Óla Óskars og hét þá Óli Óskars RE fram undir árið 1981 er Síldarvinnslan í Neskaupstað kaupir skipið og er því þá gefið nafnið Beitir NK 123. Skipið var mest við veiðar á uppsjávarfiski í flottroll og nót en auk þess var reynt fyrir sér á saltfiskverkun, rækju, grálúðu, loðnuflokkun og heilfrystingu fram undir tíunda áratuginn. Beitir er frumkvöðull að veiðum á loðnu í flottroll og auk þess fyrstur til að byrja á kolmunnaveiðum í flottrol eftir að þær hófust aftur árið 1995.  Beitir hefur gengist í gegnum miklar breytingar í gegnum  árin en dag er skipið 66 metra langt, 10 metra breitt með  2640 hestafla Wärtsilä vél, togkraft upp á 30 tonn og ber um 1150t. Í dag stundar skipið einungis uppsjávarfiskveiðar í  nót og flottroll og er af okkur talið besta nótaskip flotans.


Posted at 08:33 pm by Vilhelmh